Eftirspurn á fasteignamarkaði eykst. Þar er mikil hreyfing á bæði nýbyggingum og eldri eignum. En er nógu mikið byggt? Hvernig liggur landið úti á landi? Getur byggingariðnaðurinn annað eftirspurn?
Þekkt dæmi er lélegt framboð af lóðum og hæg uppbygging úti á landi. Sem veldur því að fólk finnur ekki eignina fyrir sig í heimabæ sínum. Hægt er að stuðla að auknu framboði húsnæðis á þeim svæðum sem fólk kýs að búa á. Það þarf að skapa jarðveginn og skoða hvar við erum að baka okkur vandræðin.
Bæði þarf aðgerðir ríkis og sveitarfélaga til að efla markaðinn
Aðgerðir hins opinbera á húsnæðismarkaði eiga að stuðla að jafnvægi og stöðugleika á markaðnum. Aðgerðir eins og að einfalda byggingareglugerðir og einfalda veitingu byggingarleyfa. Skipulagsmál sveitarfélaganna þarf að skoða, en ýmist er um að ræða ákvörðunarfælni eða flóknar aðferðir við að taka ákvarðanir í skipulagsmálum og ganga frá þeim í kerfinu.
Úttekt OECD á samkeppnishæfni Íslands í ferðaþjónustu og byggingariðnaði leiddi í ljós að regluvæðing byggingariðnaðarins læsir fjármagn inni. Með því að fylgja því verkefni eftir leysum við úr læðingi tugi milljarða á ári sem geta farið í önnur verkefni til að bæta lífskjör okkar.
Ónauðsynlegar reglur
Sleppa þarf tökum á ýmsum fyrirframákveðnum hugmyndum um nýtingu hvers og eins á húsnæði sínu. Til dæmis má nefna frábært atvik sem rataði í fjölmiðla um daginn, þar var úttekt á nýbyggingu háð því hversu margir fermetrar af grænu grasi og alveg sérstakri tegund berjarunna væri á mjög afmarkaðri séreign fasteignarinnar. Þetta eru atriði sem eru alltof nákvæm og eiga ekki að vera háð úttektinni. Einnig bjóða svona reglur upp á verulegan aukinn kostnað við nýbyggingar, sem engin þörf er á.
Þarfir markaðarins
Þá væri líka ágætt að hugmyndir um „þarfir markaðarins“, eins og til dæmis svefnherbergjafjöldi í fjöleignarhúsi, kæmu frá þeim sem eiga bein viðskipti við markaðinn og fólkið. Má hér nefna dæmi um kröfur byggingarfulltrúa um 5-herbergja íbúðir í fjöleignarhúsi sem seljast illa á markaði vegna þess að þeir sem leita sér af 5 herbergja íbúðum vilja frekar eignir eins og par-, rað- eða einbýlishús. Þrátt fyrir það var verktökum gert að byggja þessar stóru íbúðir í fjöleignarhúsum, þvert á sinn vilja og þarfir markaðarins.
Við erum gjörn að flækja fyrir okkur ýmsa hluti en hér er tækifæri til að gera betur.